sun 19. apríl 2015 16:34
Arnar Geir Halldórsson
Sherwood: Við yfirspiluðum Liverpool
Glaður maður
Glaður maður
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, var að vonum ánægður eftir leik liðsins gegn Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins í dag.

Sherwood tók við Aston Villa í febrúar á þessu ári og síðan þá hefur leikur liðsins batnað til mikilla muna.

,,Það gengur allt upp þessa dagana. Ég er ánægður með þennan sigur. Við vorum ólíklegri aðilinn fyrir leikinn en við trúðum því að við gætum unnið".

,,Satt best að segja yfirspiluðum við Liverpool. Við sköpuðum fullt af færum og þeir neyddust til að sparka boltanum langt fram og vona það besta",
sagði sigurreifur Sherwood.

Aston Villa mætir Arsenal í úrslitaleiknum en Arsenal vann Reading eftir framlengdan leik í gær.

,,Úrslitaleikurinn verður frábær viðburður. Þú getur ekki unnið þennan bikar á auðveldan hátt. Þú þarft að vinna bestu liðin til að ná í titilinn og Arsenal er eitt af þeim liðum." sagði Sherwood.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner