Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. apríl 2015 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sevilla og Villarreal fengu stig - Celta lagði Eibar
Mynd: Getty Images
Diego Mainz gerði bæði mörkin í jafntefli Granada gegn Sevilla í spænska boltanum í dag.

Mainz kom heimamönnum í Granada yfir snemma leiks en gerði svo sjálfsmark í síðari hálfleik. Sevilla fékk mikið af færum í leiknum en tókst ekki að sigra og er sem fyrr í fimmta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá Valencia í fjórða sætinu.

Villarreal stjórnaði leiknum gegn botnliði Cordoba en tókst ekki að skora í markalausu jafntefli sem skilur Villarreal eftir í sjötta sæti, sex stigum á undan Malaga og ellefu stigum frá Sevilla.

Celta Vigo lagði þá Eibar af velli og siglir lygnan sjó um miðja deild, á meðan Eibar er þremur stigum frá fallsæti.

Granada 1 - 1 Sevilla
1-0 Diego Mainz ('16)
1-1 Diego Mainz ('69, sjálfsmark)

Villarreal 0 - 0 Cordoba

Eibar 0 - 1 Celta Vigo
0-1 Duran Nolito ('40, víti)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner