„Ég er mjög ánægður með það sem strákarnir eru að gera, en lykillinn er ekki að halda áfram, við viljum bæta okkur," sagði Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, eftir markalaust jafntefli gegn Barcelona á Spáni í kvöld. Juventus komst áfram.
Þessi leikur var í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Ítalíumeistararnir unnu fyrri leikinn 3-0 og fara því áfram.
Þessi leikur var í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Ítalíumeistararnir unnu fyrri leikinn 3-0 og fara því áfram.
„Að Barcelona takist ekki að skora í tveimur leikjum, maður hefur nánast aldrei heyrt það," sagði Allegri við Mediaset Premium.
„Við vorum mjög góðir varnarlega, en ekki jafngóðir í sóknarleiknum þar sem okkur tókst ekki að nýta efnilegar skyndisóknir. Við stigum stórt skref í átt að Cardiff í kvöld."
Juventus á enn möguleika á þrennunni. Þeir eru á góðri leið með að vinna ítölsku úrvalsdeildina, eru komnir í bikarúrslit og undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir leikinn í kvöld.
Athugasemdir