„Við vissum að Barcelona væri tilbúið að fórna öllu í kvöld, en við lokuðum á allt sem þeir reyndu að gera," segir Leonardo Bonucci, varnarmaður Juventus, eftir markalaust jafntefli við Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld.
Juventus vann fyrri leikinn 3-0 og leikurinn í kvöld á Nývangi var því formsatriði ef svo má segja.
Juventus vann fyrri leikinn 3-0 og leikurinn í kvöld á Nývangi var því formsatriði ef svo má segja.
„Að skora þrjú mörk í fyrri leiknum og að halda svo hreinu á Nývangi (e. Camp Nou) sannar það að við erum frábært lið, frábær hópur," sagði Bonucci sem átti hörkuleik í kvöld.
Atletico Madrid, Real Madrid og Mónakó eru eftir, en að verður dregið í undanúrslit á föstudag.
„Drátturinn? Ég held að öll lið vilji forðast okkur núna."
Athugasemdir