Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 19. apríl 2017 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Burki: Fyrsta markið var mér að kenna
Roman Burki.
Roman Burki.
Mynd: Getty Images
„Okkar mistök hjálpuðu þeim að skora tvö mörk snemma, sem gerðu hlutina erfiðari fyrir okkur," sagði Roman Burki, markvörður Borussia Dortmund efti 3-1 tap gegn Mónakó í kvöld.

Dortmund tapaði fyrri leiknum á heimavelli 3-2 og þurfti á endurkomu að halda í kvöld. Hún kom hins vegar ekki.

„Við reyndum allt eftir hálfleik og mér fannst við spila vel þá, en þetta var búið eftir þriðja markið þeirra."

Kylian Mbappe, 18 ára gamall leikmaður Mónakó, kom þeim yfir eftir aðeins þrjár mínútur, en Burki segist bera ábyrð á markinu.

„Fyrsta markið þeirra var mér að kenna, ég hefði átt að nota hnefana til að koma honum lengra í burtu."
Athugasemdir
banner
banner
banner