Franska blaðið L’Equipe segir að Manchester United sé nálægt því að tryggja sér hægri bakvörðinn Serge Aurier frá Paris Saint-Germain.
Mikið hefur verið talað um að Jose Mourinho ætli að taka til í vörninni hjá sér og sögusagnir um að óvissa ríki með framtíð Matteo Darmian, Phil Jones, og Chris Smalling.
Mikið hefur verið talað um að Jose Mourinho ætli að taka til í vörninni hjá sér og sögusagnir um að óvissa ríki með framtíð Matteo Darmian, Phil Jones, og Chris Smalling.
L’Equipe segir að áhuginn sé gagnkvæmur; Aurier hafi látið Mourinho vita að hann vilji fara á Old Trafford.
Aurier er 24 ára og er samningsbundinn til 2019. Talið er að leikmaðurinn gæti kostað Manchester United í kringum 20 milljónir evra.
Aurier er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar en þar er hann samherji Eric Bailly, miðvarðar United.
Athugasemdir