Cristiano Ronaldo hefur beðið stuðningsmenn Real Madrid um að hætta að baula á sig í leikjum.
Ronaldo skoraði þrennu gegn FC Bayern í gærkvöldi en stuðningsmenn Real höfðu fyrr í leiknum baulað á hann.
Ronaldo fékk baul á sig frá stuðningsmönnum Real þegar hann átti misheppnuð skot í fyrri hálfleiknum.
„Ég er ekki að biðja þá um að nefna göturnar eftir mér. Það eina sem ég bið um er að þeir bauli ekki á mig hérna," sagði Ronaldo ósáttur eftir leik.
„Ég vil að þeir hætti að baula á mig því ég geri alltaf mitt besta og jafnvel þegar að ég skora ekki þá reyni ég að hjálpa Real Madrid."
Athugasemdir