Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 19. apríl 2018 16:16
Ingólfur Stefánsson
Byrjunarlið Vals og ÍBV: Íslandmeistararnir tefla fram sterku liði
Birkir Már byrjar
Birkir Már byrjar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur og ÍBV mætast í dag í leiknum um meistara meistaranna. Leikunum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Valsmenn eru Íslandsmeistarar eftir öruggan sigur í Pepsi deildinni síðasta sumar. ÍBV urðu bikarmeistarar eftir 1-0 sigur á FH í úrslitaleik Borgunarbikarsins.

Valsmenn hafa styrkt sig töluvert í vetur og unnu Lengjubikarinn á dögunum. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins fyrir sumarið sem byrjar í dag.

ÍBV enduðu í 9. sæti í Pepsi deildinni í fyrra og þeim er spáð sama sæti í ár af sérfræðingum Fótbolta.net.

Liðin stilla upp sterkum liðum í leiknum. Sigurður Egill Lárusson, Guðjón Pétur Lýðsson og Birkir Már Sævarsson byrja hjá Val. Patrick Pedersen byrjar upp á topp. Þá byrjar Eiður Aron Sigurbjörnsson gegn sínum gömlu félögum.

Shahab Zahedi og Sindri Snær Magnússon eru á sínum stað hjá ÍBV.

Byrjunarliðin í leiknum má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Vals: Anton Ari Einarsson (M), Einar Karl Ingvarsson, Haukur Páll Sigurðsson, Patrick Pedersen, Guðjón Pétur Lýðsson, Sigurður Egill Lárusson, Rasmus Christiansen, Dion Jeremy Acoff, Bjarni Ólafur Eiríksson, Birkir Már Sævarsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson,
Varamannabekkur:Sveinn Sigurður Jóhannesson (M), Ívar Örn Jónsson, Kristinn Ingi Halldórsson, Tobias Thomsen, Andri Fannar Stefánsson, Kristinn Freyr Sigurðsson.

Byrjunarlið ÍBV: Derby Carrilloberduo (M), Sigurður Arnar Magnússon, Dagur Austmann Hilmarsson, Kaj Leo í Bartalsstovu, Priestley David Keithly, Shahab Zahedi Tabar, Sindri Snær Magnússon (F), Róbert Aron Eysteinsson, Alfreð Már Hjaltalín, Felix Örn Friðriksson, Atli Arnarson
Varamannabekkur: Halldór Páll Geirsson (M), Nökkvi Már Nökkvason, Devon Már Griffin, Ágúst Leó Björnsson, Eyþór Orri Ómarsson, Gunnar H. Þorvaldsson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner