Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. apríl 2018 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Burnley og Chelsea: Jói bestur hjá Burnley
Mynd: Getty Images
Victor Moses og Jóhann Berg Guðmundsson voru bestu menn sinna liða þegar Burnley tók á móti Chelsea í enska boltanum í dag. Þeir munu mætast aftur þegar Ísland mætir Nígeríu í Rússlandi í sumar.

Moses stjórnaði hægri vængnum og átti stóran þátt í báðum mörkum Chelsea í leiknum og fær hann 8 í einkunn.

Jóhann Berg var duglegur og hættulegur með boltann og er skráður fyrir stoðsendingunni í eina marki Burnley.

Jóhann skaut knettinum í átt að marki en hann hafði viðkomu í Ashley Barnes, breytti um stefnu og fór í netið þar sem Thibaut Courtois kom engum vörnum við.

Einkunnagjöfin hér fyrir neðan er tekin af vefsíðu SkySports.

Burnley:
Pope (5)
Lowton (5)
Long (5)
Tarkowski (6)
Ward (6)
Lennon (6)
Cork (6)
Westwood (6)
Gudmundsson (7)
Barnes (7)
Wood (6)
Varamenn:
Vokes (6)

Chelsea:
Courtois (6)
Azpilicueta (6)
Cahill (7)
Rudiger (6)
Moses (8)
Kante (7)
Bakayoko (7)
Emerson (7)
Pedro (7)
Morata (6)
Giroud (7).
Varamenn:
Hazard (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner