Henrikh Mkhityaryan gæti náð fyrri leik Arsenal gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.
Mkhitaryan skaddaði liðband í hné í fyrri leik Arsenal gegn CSKA Moskvu í 8-liða úrslitunum. Hann hefur verið frá í tvær vikur og gæti hann snúið aftur í næstu viku.
„Mkhitaryan er byrjaður að hlaupa aftur," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal við blaðamenn í dag.

„Við munum sjá hvernig hann verður á æfingum næstu daga. Hann gæti snúið aftur á fimmtudaginn, ekki fyrr."
Fyrri leikur Arsenal gegn Atletico í undanúrslitum er í næstu viku og seinni leikurinn í Madríd er í vikunni á eftir. Wenger hefur talað um að einbeiting hans sé frekar á Evrópudeildinni en ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið er í sjötta sæti.
Athugasemdir