Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. apríl 2018 11:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp sagði leikmönnum sínum að vera naktir út af Salah
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur greint frá því að hann hafi hvatt leikmenn sína til að æfa naktir fyrir seinni leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Ástæðan? Jú, Mohamed Salah.

„Þetta er mjög góður hópur og allir strákarnir hafa tekið vel í umtalið sem er í kringum Mo," sagði Klopp.

„Þegar við tókum síðustu æfingu fyrir leikinn gegn Manchester City, þá sagði ég, ‘koma svo allir, förum út naktir. Það mun enginn átta sig á því vegna þess að allir eru að horfa á Mo’."

Mohamed Salah hefur verið magnaður á tímablinu eftir að hafa komið frá Roma síðasta sumar. Hann hefur skorað 40 mörk í öllum keppnum, eitthvað sem enginn bjóst við.
Athugasemdir
banner
banner
banner