Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. apríl 2018 16:48
Ingólfur Stefánsson
Mjólkurbikarinn: Haukar og Víkingur Ó. ekki í vandræðum
Daði Snær skoraði í dag
Daði Snær skoraði í dag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Önnur umferð í bikarkeppni karla, Mjólkurbikarnum, hófst í dag. Fyrr í dag unnu ÍA og Afturelding stórsigra.

Tveimur leikjum í viðbót var að ljúka en Haukar og Víkingur Ólafsvík unnu sína leiki í einnig sannfærandi.

Haukar tóku á móti Vestra á Ásvöllum. Daði Snær Ingason og Arnar Aðalgeirsson komu Haukum í 2-0 en Pétur Bjarnason minnkaði muninn fyrir Vestra í lok fyrri hálfleiks.

Birgir Þór Þorsteinsson kom Haukum í 3-1 í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat. Sanngjarn sigur Hauka staðreynd.

Víkingar frá Ólafsvík mættu KFG og unnu öruggan 5-0 sigur.

Haukar 3-1 Vestri
1-0 Daði Snær Ingason (30')
2-0 Arnar Aðalgeirsson (36')
2-1 Pétur Bjarnason (40')
3-1 Birgir Þór Þorsteinsson (47')

KFG 0-5 Víkingur Ó.
0-1 Ívar Reynir Antonsson ('26)
0-2 Baldur Jónsson ('33, sjálfsmark)
0-3 Sigurður Helgi Harðarson ('50, sjálfsmark)
0-4 Kwane Quee ('63)
0-5 Kwane Quee ('85, víti)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner