Þrír leikmenn frá Serbíu hafa gengið til liðs við Hamar frá Hveragerði fyrir átökin í 4. deildinni næsta sumar.
Sóknarmaðurinn Ivan Milenkovic mun taka skónna af hillunni og spila fyrir liðið. Ivan hefur áður spilað fyrir Hamar í 2. deildinni árið 2008.
Dimitrije Pobulic, 23 ára miðjumaður kemur til liðs við liðið frá BSK Borca í 2. deildinni í Serbíu.
Vladimer Panic er þriðji leikmaðurinn sem skrifaði undir en hann er 30 ára gamall miðvörður frá Serbíu. Hann er með reynslu úr 2. deildinni í Serbíu og neðri deildum í Þýskalandi.

Dusan Ivkovic tók við þjálfun Hamars í vetur.
Athugasemdir