Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. apríl 2018 17:00
Ingólfur Stefánsson
Wan-Bissaka framlengir við Crystal Palace
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Aaron Wan-Bissaka hjá Crystal Palace hefur skrifað undir framlengingu á samning sínum hjá félaginu. Samningurinn gildir fram í júní árið 2020.

Wan-Bissaka spilaði sinn fyrsta leik fyrir Crystal Palace í febrúar. Í kjölfarið hefur þessi 20 ára leikmaður heillað með spilamennsku sinni og hann var meðal annars valinn leikmaður mánaðarins hjá félaginu í mars.

Í viðtali við heimasíðu félagsins sagðist Wan-Bissaka vera ánægður með að skrifa undir hjá félaginu sem hann hefði verið hjá síðan hann var ellefu ára gamall.

„Ég vill þakka Roy Hodgson, þjálfurunum og formanninum fyrir að hafa trú á mér og ég mun reyna að endurgjalda þeim á vellinum. Þetta hefur verið ótrúlegt tímabil fyrir mig og ég hef lært mjög mikið."

Athugasemdir
banner
banner
banner