Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. apríl 2018 18:30
Ingólfur Stefánsson
Wenger veit ekki hvað Wilshere ætlar að gera
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger stjóri Arsenal veit ekki hvort að Jack Wilshere miðjumaður liðsins verði áfram hjá félaginu en vonast þó til þess að leikmaðurinn skrifi undir nýjan samning.

Samningur Wilsher við félagið rennur út í sumar og hann hefur meðal annars verið orðaður við Wolves sem verða nýliðar í deildinni á næsta tímabili.

Arsenal hafa boðið Wilshere nýjan samning og Wenger reiknar með því að hann ákveði sig áður en HM í Rússlandi hefst í sumar.

„Ég get ekki fært ykkur neinar fréttir því ég veit ekki hvað hann er að hugsa. Í augnablikinu hefur hann ekki skrifað undir neitt en við viljum halda honum."

„Ég er alltaf bjartsýnn. Sem félag viljum við halda leikmönnum okkar og við borgum þeim vel. Wilshere verður að taka þessa ákvörðun sjálfur."
Athugasemdir
banner
banner
banner