Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 15:09
Sebastían Sævarsson Meyer
Anderlecht meistari í 32. sinn - Ólafur í öðru og Eiður í þriðja
Anderlecht tryggði sér belgíska meistaratitilinn í dag eftir 1-1 jafntefli gegn Zulte-Waregem í hreinum úrslitaleik. Liðið varði þar með titilinn frá því í fyrra en þetta er í 32. sinn sem félagið verður belgískur meistari.

Zulte-Waregem hefði þurft á sigri að halda til að geta unnið deildina og komst liðið yfir gegn Anderlecht með marki frá Jens Naessens á 56. mínútu.

En aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Luca Rodrigo Biglia fyrir Anderlecht og þar við stóð. Ólafur Ingi Skúlason kom inn á sem varamaður í liði Zulte-Waregem, en liðið endar tveimur stigum á eftir Anderlecht í öðru sæti.

Þá lék Eiður Smári Guðjohnsen allan leikinn með Club Brugge þegar liðið lagði Genk með einu marki gegn engu. Carlos Bacca skoraði sigurmarkið en Club Brugge endar í þriðja sæti, þremur stigum frá toppnum.
Slapp
banner