Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 09:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Bayern München setti 26 met í þýsku úrvalsdeildinni
Bayern München átti besta tímabil sem sést hefur í sögu þýsku úrvalsdeildarinnar. Liðið sló hvert metið á fætur öðru í deildinni á þessari leiktíð, en eftir magnaðan 4-3 sigur á Mönchengladbach í lokaumferðinni í gær endaði liðið á toppi deildarinnar með 25 stiga forskot.

Það var eitt af þeim 26 metum sem liðið setti í deildinni í ár en hér að neðan rennum við yfir þau öll.



Flest stig: 91
Bayern bætti fyrra stigamet Borussia Dortmund frá síðustu leiktíð um tíu stig.

Mesta forskot á toppnum: 25 stig
Aldrei hefur lið verið með eins mikið forskot á toppnum eins og Bayern að tímabili loknu. Bayern sló sitt eigið met, en fyrra metið var 16 stiga forskot.

Fljótasti meistarinn: 28. umferð
Bayern tryggði sér þýska meistaratitilinn þann 6. april í 28 umferð. Bayern sló eigið met en áður hafði félagið orðið meistari eftir 30. umferð, árin 1997 og 2007.

Í efsta sæti eftir hverja umferð
Bayern var alltaf á toppnum á tímabilinu. Það gerði félagið einnig á árunum 1968/69, 1972/73, 1984/85, 2007/08.

Flestir sigrar: 29
Aldrei hefur lið unnið eins marga leiki og Bayern gerði á þessari leiktíð. Bayern deildi fyrra metinu með Dortmund en það voru 25 sigrar.

Flestir sigrar í röð: 14
Bayern sló fyrra met Mönchengladbach og Wolfsburg en þau unnu á sínum tíma 10 leiki í röð.

Fæstir ósigrar: 1
Aðeins einn tapleikur. Bayern jafnaði eigið met frá 1986/87.

Fæst mörk fengin á sig: 18
Manuel Neuer fékk á sig aðeins 18 mörk og bætti þar með met Oliver Kahn sem fékk á sig 21 mark á sínu síðasta tímabili, 2007/08.

Oftast haldið hreinu: 21 leikur
Bayern hélt markinu hreinu í 21 leik af 34. Fyrra metið voru það 19 leikir sem Bayern átti með Werder Bremen.

Að minnsta kosti eitt mark skorað í leik
Í fyrsta sinn í sögunni tókst Bayern að skora í hverjum einasta leik í deildinni á einu tímabili. Köln gerði það einnig á tímabilinu 1963/64.

Mark skorað í 36 leikjum í röð
Bayern hefur skorað í síðustu 36 leikjum í deildarkeppni og hefur jafnað eigið met. Liðið getur bætt það í fyrstu umferð á næstu leiktíð.

Besta markahlutfall: +80 (98:18)
Ótrúleg 98 mörk skoruð og aðeins 18 fengin á sig. +80 í markatölu, Bayern átti líka gamla metið sem var +64 eftir tímabilið 1972/73.

Flestir sigrar á útivöllum: 15
Bæjarar voru ógnasterkir í útileikjum sínum á tímabilinu og unnu 15 leiki af 17 og bætti þar með met Dortmund og Bremen sem unnu á sínum tíma 11 útileiki á einni leiktíð.

Fæstir ósigrar á útivöllum: 0
Bayern tapaði aldrei á útivelli. Það gerði félagið einnig á tímabilinu 1986/87.

Flest stig unnin á útivöllum: 47
Bayern vann 15 leiki á útivelli og gerði tvö jafntefli. Fyrir það fékk liðið 47 stig, tíu stigum meira en Dortmund og Bremen fengu á sínum tíma.

Flestir sigrar í röð á útivöllum: 9
Bayern vann níu útileiki í röð. Einum leik meira en Dortmund gerði á tímabilinu 2010/11.

Fæst mörk fengin á sig á útivöllum: 7
Bayern fékk aðeins sjö mörk á sig á útivöllum, þremur færri en Bremen fékk á sig tímabilið 1987/88.

Fljótasti haustmeistari: 14. umferð
Bayern tryggði sér efsta sæti deildarinnar áður en deildin fór í jólafrí í 14. umferð, einni umferð fyrr en Dortmund, Kaiserslauterm og Frankfurt gerðu á sínum tíma.

Besta markahlutfall eftir fyrri hluta tímabils: +37 (44:7)
Bayern var með níu stiga forskot á toppi deildarinnar áður en jólafríið gekk í garð með markahlutfallið +37. Liðið bætti þar með eigið met frá síðustu leiktíð, en þá var markahlutfallið +34.

Fæst mörk fengin á sig á fyrri hluta tímabils: 7
Bayern fékk aðeins sjö mörk á sig í fyrstu 17 leikjunum og jafnaði met Stuttgart frá leitkíðinni 2003/04.

Fæst mörk fengin á sig á útivöllum á fyrri hluta tímabils: 1
Hins vegar bætti Bayern met Stuttgart um fæst mörk fengin á sig á útivöllum í fyrstu 17 leikjunum. Stuttgart var methafi með tvö mörk fengin á sig en Bayern fékk aðeins eitt mark á sig á á útivöllum á fyrri hluta tímabilsins.

Fyrstu fimm útileikir á tímabilinu án þess að fá á sig mark
Bayern hélt hreinu í fyrstu fimm útileikjunum, ekkert lið hafði áður afrekað það.

Besta byrjun á tímabili: 8 sigrar
Bayern byrjaði af miklum krafti og vann fyrstu átta deildarleikina. Nýtt met, en gamla metið átti Bayern með Kaiserslautern og Mainz eftir að hafa unnið fyrstu sjö leikina í gamla daga.

Flest stig unnin á seinni hluta tímabilsins: 49
Bayern fékk 49 stig af 51 mögulegum á seinni hluta tímabilsins. Eitthvað sem verður seint slegið, en Dortmund átti gamla metið eftir að hafa safnað 47 stigum á síðari hluta tímabils 2010/11.

Besta byrjun á seinni hluta tímabils: 14 sigrar
Að hafa unnið 14 leiki í röð í deildinni var nýtt met, en sigrarnir komu allir í fyrstu 14 leikjum síðari hluta tímabilsins, líka nýtt met. Það bætti met Dortmund um helming frá því í fyrra.

Flestir meistaratitlar: 23
Bayern heldur áfram að bæta við titlum í safnið.
Slapp
banner
banner
banner