Heimild: Sky
Jamie Carragher varnarmaður Liverpool leikur sinn síðasta leik á ferlinum í dag þegar liðið mætir QPR á Anfield í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Hann er hissa á að ekkert félag hefur viljað fá sig allan ferilinn sem spannar 16 ár og 737 leiki eftir daginn í dag.
,,Ég hef aldrei átt möguleika á að fara, ég veit ekki hvort það var gott eða slæmt," sagði Carragher við The Sun. ,,Kannski hefur enginn áhuga á mér!"
,,Ég hef aldrei verið nærri því. Umboðsmaðurinn minn hefur aldrei hringt og sagt, 'Þetta félag hefur áhuga á að kaupa þig'. Ekki einu sinni."
,,Kannski litu menn alltaf á mig sem 'Herra Liverpool', ætli það ekki. Þið yrðuð að spyrja stjórana, en ég hefði samt aldrei farið undir neinum kringumstæðum."
,,Kannski áttuðu þessir stjórar sig á því, eða eins og ég sagði, þeir höfðu bara ekki áhuga á mér."
,,Ég get ekki sagt að ég hafi nokkurn tíma hugsað um að fara þegar ég var ekki í liðinu. Maður á góðar stundir og slæmar hjá félaginu. Þetta er eins og að vera stuðningsmaður. Maður hættir ekki að styðja liðið því það á slæman kafla."
,,Og við höfum átt frábærar stundir hérna, unnið stóra titla. Svo ég tel mig heppinn og hafa búið við forrréttindi."





