Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 17:29
Brynjar Ingi Erluson
Carragher: Þetta hefur verið tilfinningaríkur dagur
Jamie Carragher lék sinn síðasta leik á ferlinum í dag er Liverpool vann QPR með einu marki gegn engu.

Carragher lék allan sinn feril með Liverpool. Hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið og var alls ekki langt frá því að skora í sínum síðasta leik er hann skaut í stöng, en heppnin var ekki með honum.

Hann segir að dagurinn hafi boðið upp á tilfinningaflóð, en að það hafi verið mikilvægast að ná sigri í dag.

,,Það var erfitt að tárast ekki. Þessi dagur hefur verið tilfinningaríkur fyrir mig, vini mína og fjölskyldu en það var mikilvægt að ná sigri í dag og okkur tókst að gera það," sagði Carragher.

,,Ég skoraði í mínum fyrsta leik fyrir félagið og það hefði verið yndislegt ef skotið mitt hefði farið í netið. Ég er rétt að ná tökum á því að skjóta núna og það í síðasta leiknum mínum, það er heldur seint!," sagði Carragher að lokum.
Slapp
banner
banner
banner