Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Clichy framlengir við Man City
Gael Clichy, franskur vinstri bakvörður Manchester City, er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning sem bindur hann við félagið þar til árið 2017.

Clichy er 27 ára gamall og hefur leikið 56 deildarleiki frá komu sinni fyrir tveimur árum og var tíður byrjunarliðsmaður þegar City vann deildina á síðasta tímabili.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa náð samkomulagi við City og ég hlakka til næsta tímabils," sagði Clichy við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Hlutirnir gengu ekki upp eins og við vildum í ár en við munum koma til baka betri og reynslumeiri á næsta tímabili."

Clichy kom til City frá Arsenal, en þar lék hann 187 leiki á 8 árum. Hann kom til Arsenal árið 2003 frá franska félaginu Cannes.
Slapp
banner