Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 15:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Danny Simpson á förum frá Newcastle
Danny Simpson, hægri bakvörður Newcastle, er á förum frá félaginu.

Simpson verður samingslaus í sumar og ljóst er að hann mun ekki gera nýjan samning.

Simpson hefur einungis leikið 19 leiki á tímabilinu og samkeppnin hefur aukist eftir að Massadio Haidara og Mathieu Debuchy komu til Newcastle í janúar.

,,Ég mun pottþétt sakna félagsins. Það hefur verið stór hluti af fótboltaferli mínum," sagði Simpson.

Simpson er uppalinn hjá Manchester United en hann hefur leikið með Newcastle undanfarin fjögur ár.
Slapp
banner
banner