Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 17:42
Sebastían Sævarsson Meyer
Ferguson neitaði að tala við blaðamenn eftir síðasta leikinn
Sir Alex Ferguson neitaði að tala við blaðamenn eftir sinn síðasta leik við stjórnvölinn hjá Manchester United.

Ferguson fékk ævintýralegan leik í kveðjugjöf en Manchester United gerði 5-5 jafntefli við West Brom.

Ferguson vildi ekki tjá sig um þennan ótrúlega leik en hann lætur af störfum sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tæp 27 ár í starfi.

Hér með er farsælum ferli hans lokið hjá Manchester United þar sem hann vann meðal annars þrettán meistaratitla, fimm bikarmeistaratitla og tvo Meistaradeildartitla.

Hér má sjá Ferguson þakka stuðningsmönnum fyrir eftir leikinn í kvöld:

Slapp
banner
banner