Sir Alex Ferguson fékk sannkallaða flugeldasýningu í kveðjugjöf þegar Manchester United gerði 5-5 jafntefli við West Brom í síðasta leik liðsins undir stjórn Ferguson.
Javier Hernandez, sem skoraði fimmta mark Manchester United, sagði að Ferguson eigi aldrei eftir að gleyma þessum leik en tók fram að liðið hefði frekar viljað vinna leikinn fyrir Ferguson og Paul Scholes, sem leggur skóna á hilluna.

,,Ég man ekki eftir að spila leik þar sem tíu mörk voru skoruð. Við erum örlítið pirraðir því við vildum vinna fyrir stjórann og Scholes. En stjórinn mun klárlega muna eftir sínum síðasta leik við stjórn," sagði Hernandez eftir leikinn.
,,Hann mun allavega aldrei gleyma þessum leik. Þetta er örugglega í fyrsta sinn sem Manchester United var 5-2 yfir en ekki unnið."
,,Stjórinn hefur stýrt félaginu á toppinn og við eigum eftir að sakna hans. Ég vil líka þakka Scholes fyrir, hann hefur verið ótrúlegur liðsfélagi."