Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 21:02
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Milan kom til baka - Inter hafnaði í níunda sæti
Síðasta umferð ítölsku deildarinnar fór fram í dag, en ekki alltaf er boðið upp á jafnmörg mörk og í síðustu umferðunum í Evrópu.

Það var nóg um að vera í dag. AC Milan kom til baka gegn Siena. Claudio Terzi kom Siena yfir um miðjan fyrri hálfleik áður en Mario Balotelli jafnaði metin á 84. mínútu með marki úr vítaspyrnu.

Philippe Mexes tryggði þá Milan sigur með marki þremur mínútum síðar. Bæði Massimo Ambrosini og Christian Terlizzi fengu að líta rauða spjaldið á 70. mínútu. Milan tryggði sér þar með þriðja sæti deildarinnar.

Fiorentina valtaði yfir Pescara á útivelli með því að sigra með fimm mörkum gegn einu og þá vann AS Roma lið Napoli með tveimur mörkum gegn einu. Internazionale tapaði stórt á heimavelli, 2-5 fyrir Udinese, en liðið hafnaði í níunda sæti deildarinnar.

Úrslit og markaskorarar:

Siena 1 - 2 Milan
1-0 Claudio Terzi ('25 )
1-1 Mario Balotelli ('84 , víti)
1-2 Philippe Mexes ('87 )
Rautt spjald: ,Massimo Ambrosini, Milan ('69)Christian Terlizzi, Siena ('70)

Torino 2 - 2 Catania
0-1 Sergio Almiron ('25 )
1-1 Alessio Cerci ('53 )
1-2 Gonzalo Bergessio ('62 )
2-2 Rolando Bianchi ('83 )

Atalanta 2 - 2 Chievo
1-0 Guglielmo Stendardo ('8 )
1-1 Cyril Thereau ('76 )
2-1 Luigi Giorgi ('84 )
2-2 Cyril Thereau ('90 )

Palermo 1 - 3 Parma
0-1 Massimo Gobbi ('39 )
0-2 Jaime Valdes ('42 )
0-3 Ishak Belfodil ('45 )
1-3 Fabrizio Miccoli ('76 )

Pescara 1 - 5 Fiorentina
0-1 Adem Ljajic ('16 )
0-2 Adem Ljajic ('24 )
0-3 Matias Fernandez ('28 )
0-4 Stevan Jovetic ('54 )
0-5 Adem Ljajic ('59 )
1-5 Marco Vittiglio ('76 )

Cagliari 1 - 0 Lazio
1-0 Daniele Dessena ('75 )

Bologna 0 - 0 Genoa

Roma 2 - 1 Napoli
1-0 Marquinho ('47 )
2-0 Mattia Destro ('59 )
2-1 Edinson Cavani ('85 )

Inter 2 - 5 Udinese
0-1 Giampiero Pinzi ('1 )
0-2 Maurizio Domizzi ('10 )
1-2 Juan ('12 )
1-3 Antonio Di Natale ('41 )
1-4 Gabriel Silva ('52 )
2-4 Tommaso Rocchi ('63 )
2-5 Luis Muriel ('66 )
Slapp