Frank Lampard, leikmaður Chelsea á Englandi, var ánægður með 2-1 sigurinn á Everton í dag og þakkaði þá stuðningsmönnum liðsins kærlega fyrir stuðning þeirra á tímabilinu.
Fernando Torres skoraði sigurmark Chelsea í dag gegn Everton, en þar með tryggði liðið sér þriðja sæti deildarinnar.
Lampard var ánægður með tímabilið en ljóst er að liðið leikur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liðið vann þá Benfica í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr í vikunni og vildi Lampard þakka stuðningsmönnum fyrir allt.
,,Ég vil bara þakka kærlega fyrir ykkar stuðning á þessu ári, þið hafið verið ótrúleg enn og aftur," sagði Lampard.
,,Ekki bara það heldur hvernig þið styðjið liðið alla daga vikunnar, þið eruð klárlega bestu stuðningsmenn í heimi," sagði hann að lokum.


