Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 18:17
Brynjar Ingi Erluson
Michael Owen: Markið gegn Argentínu breytti lífi mínu
Michael Owen, einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, lagði skóna á hilluna í dag eins og margir aðrir frábærir knattspyrnumenn, en hann var ánægður með daginn.

Owen, sem er 33 ára gamall, lék með Liverpool, Real Madrid, Newcastle United, Manchester United og nú síðast Stoke City á ferlinum, en hann lék sinn síðasta leik í jafntefli gegn Southampton.

,,Það má segja að þetta hafi verið tilfinningaríkur dagur, en ég var búinn að ákveða þetta fyrir löngu, svo ég var búinn að undirbúa mig," sagði Owen.

,,Stuðningsmenn Stoke sungu nafn mitt allan leikinn. Ég átti það þannig séð ekki skilið þar sem ég gerði ekki mikið fyrir liðið á tíma mínum hér en ég mun aldrei gleyma þessu og jafnvel stuðningsmenn Southampton voru frábærir."

,,Það hefur verið mikil ánægja að spila þessa íþrótt, þetta hefur verið sérstakt. Maður veit aldrei hvað gerist í lífinu, en ég vissi alltaf að ég yrði knattspyrnumaður. Þetta hljómar mjög hrokafullt, en þetta er sannleikurinn."

,,Að skora í El Clasico var sérstakt ef horft er á markaskorara leiksins þann daginn, mörg mörk með Liverpool og þar má helst nefna í úrslitaleik FA bikarins og svo að sjálfsögðu í nágrannaslagnum Manchester United og Manchester City, en markið gegn Argentínu á HM 1998 breytti lífi mínu,"
sagði Owen að lokum.
Slapp
banner
banner