David Moyes stýrði sínum seinasta leik með Everton í dag, en liðið tapaði með tveimur mörkum gegn einu gegn Chelsea.
Moyes gerði frábæra hluti með Everton, en hann stýrði liðinu í ellefu ár. Hann stýrði sínum síðasta leik með liðið í dag.
Hann tekur við Manchester United í sumar af Sir Alex Ferguson sem tilkynnti á dögunum að hann myndi hætta með liðið eftir tímabilið.
,,Tilfinningarnar hafa verið miklar í dag, því þetta er í síðasta sinn sem ég þjálfa þessa leikmenn en þetta er hluti af þessu," sagði Moyes.
,,Það er mjög sjaldgæft að vera starfandi þjálfari hjá liði í ellefu ár, svo ég er mjög svo þakklátur fyrir tækifærið og vonast til þess að liðið haldi áfram á sömu braut. Ég er enn að átta mig á öllu sem hefur gerst undanfarna daga," sagði hann að lokum.



