Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 19. maí 2013 17:41
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Síðasta mark Bale fyrir Tottenham?
Gareth Bale skoraði enn eitt glæsimarkið fyrir Tottenham þegar liðið vann Sunderland í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Markið tryggði Tottenham þrjú stig sem litlu breyta þar sem Arsenal vann sinn leik og kemst í Meistaradeildina á meðan Tottenham þarf að sætta sig við Evrópudeildina.

Bale hefur verið á eldi á þessu tímabili og nánast pottþétt að stór félög munu reyna að tryggja sér þjónustu hans.

Var þetta glæsilega mark sem við sjáum hér að neðan síðasta mark Bale í búningi Tottenham?



Slapp
banner