Phil Neville, fyrirliði Everton á Englandi, yfirgefur félagið í sumar, en hann ætlar að taka sér nokkrar vikur í að ákveða hvort hann komi til með að halda knattspyrnuiðkun áfram.
Margir frábærir knattspyrnumenn hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þar má nefna leikmenn á borð við Jamie Carragher, David Beckham, Michael Owen og Steven Harper meðal annars.
Samningur Neville hjá Everton rennur út í sumar og ljóst er að hann kemur ekki til með að framlengja samning sinn. Hann er að íhuga framhaldið á ferlinum, en hann fer yfir málin í sumar og ákveður þá hvort hann komi til með að finna sér nýtt lið eða hreinlega leggja skóna á hilluna.
,,Þetta er ekki sorgardagur, heldur er ég stoltur og heppinn að hafa fengið að spila með tveimur frábærum knattsprnufélögum," sagði Neville.
,,Ég er ekki búinn að gera upp hug minn. Ég er ekki búinn að staðfesta það að ég sé hættur í fóbolta, en ég mun taka næstu tvær eða þrjár vikur í að fara yfir þetta og sjá hvort líkami minn er klár í meiri bolta."
,,Ég mun setjast niður með konunni og börnunum og komast þannig að niðurstöðu. Það hafa margir verið að leggja skóna á hilluna, en ég vil taka mér nokkrar vikur í að skoða þessi mál, taka mér gott frí og komast að niðurstöðu."
,,Það hefur verið mikið álag á líkamanum og ég held að ég þurfi að hvíla mig aðeins áður en ég kemst að réttri niðurstöðu," sagði hann að lokum.


