Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 19. maí 2013 23:11
Brynjar Ingi Erluson
Porto meistari þriðja árið í röð - Taplaust tímabil
FC Porto frá Portúgal er deildarmeistari þriðja árið í röð eftir að hafa lagt Pacos Ferreira að velli með tveimur mörkum gegn engu.

Porto vann 24 leiki á tímabilinu og gerði sex jafntefli, en liðið fór taplaust í gegnum tímabilið. Þetta tímabil var gríðarlega spennandi, en það stefndi allt í að Benfica væri að landa sigri.

Liðin áttu hinsvegar eftir að mæta hvort öðru og þar hafði Porto betur og sigraði 2-1. Eitt stig skildi liðin að í deildinni, en Benfica vann 24 leiki, gerði fimm jafntefli og tapaði þessum eina leik.

Jackson Martinez var einhver besti leikmaður liðsins, en hann skoraði 26 mörk í deildinni og þar með markahæstur. Annar öflugur leikmaður liðsins er landi hans James Rodriguez, sem skoraði 10 mörk.
Slapp
banner
banner