Arsenal tryggði sér fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag eftir 1-0 sigur á Newcastle í lokaumferðinni.
Þar með mun liðið taka þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en mikill fögnuður braust út á meðal leikmanna Arsenal eftir leikinn. Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal, leið eins og hann hafði unnið deildina.

Fyrir tíu umferðum var Arsenal í fimmta sæti, sjö stigum á eftir Tottenham en lauk tímabilinu einu stigi ofar en erkifendur sínir sem þurfa að sætta sig við Evrópudeildina.
,,Við fögnuðum eins og við höfðum unnið deildina, sem var kannski skrítið miðað við markmiðin sem við settum í upphafi tímabilsins," sagði Szczesny eftir leikinn.
,,Við vorum bjartsýnir, við höfum ekki fengið mörg mörk á okkur og það gaf okkur mikið sjálfsöryggi um að vinna leikinn þegar við skoruðum."