Magnús Örn Helgason skrifar frá Seltjarnarnesi
Grótta 0 - 0 Hamar
Það blés hressilega úr austri þegar leikur Gróttu og Hamars fór fram á Seltjarnarnesi fyrr í dag. Gervigrasið á Gróttuvelli var þó iðagrænt og ágætis mæting í stúkuna.
Það blés hressilega úr austri þegar leikur Gróttu og Hamars fór fram á Seltjarnarnesi fyrr í dag. Gervigrasið á Gróttuvelli var þó iðagrænt og ágætis mæting í stúkuna.
Gróttumenn byrjuðu betur og strax á 4. mínútu gerðu þeir tilkall til vítaspyrnu þegar Hrafn Jónsson virtist felldur í teignum. Pétur Theodór Árnason framherji Gróttu skallaði í slá 15 mínútum síðar, þó ekki réttu megin, og munaði þar minnstu að Hamarsmen tækju forystu.
Eftir bragðdaufan hálftíma hresstust Gróttumenn og sóttu hart að gestunum undir lok fyrri hálfleiks án þess þó að skapa sér opin færi. Grótta lék undan vindi í seinni hálfleik og fór bróðurpartur leiksins fram á vallarhelmingi gestanna.
Jens Elvar Sævarsson kom inná sem varamaður í liði Gróttu og komst nokkrum sinnum í ágæta stöðu upp við teiginn. Annar varamaður, Rúnar Guðbjartsson, átti skot rétt yfir markið eftir laglegt spil Gróttumanna en varnarmúr Hamars var ólseigur í leiknum.
Í uppbótartíma virtust Gróttamenn ætla að kreista fram sigur þegar Hrafn Jónsson átti frábæra sendingu fyrir markið á Anton Ástvaldsson sem kom á siglingunni. Á ótrúlegan hátt tókst varnarmönnum Hvergerðinga að bjarga á línu og bægja hættunni frá og skömmu síðar var flautað til leiksloka.
Hamarsmönnum var spáð falli fyrir mót og geta þeir sáttir unað með tvö stig eftir tvo útileiki í fyrstu umferðunum. Gróttumenn verða hins vegar að girða sig í brók og bæta leik sinn ætli þeir sér að taka þátt í toppbaráttunni í sumar.



