Walter Mazzarri, þjálfari Napoli á Ítalíu, hefur staðfest að hann hætti með liðið í sumar, en hann stýrði sínum síðasta leik í kvöld.
Mazzarri tók við liðinu árið 2009, en síðan þá hefur hann gert magnaða hluti. Liðið hafnaði í öðru sæti á þessari leiktíð og þá vann liðið ítalska bikarinn í fyrra.
Það hafði verið hávær orðrómur um það að Mazzarri myndi hætta með liðið í sumar, en þá rennur samningur hans út. Þjálfarinn staðfesti það svo við fjölmiðla í kvöld að þetta væri hans síðasti leikur.
,,Ég vil þakka stuðningsmönnunum, en tíma mínum hjá Napoli er lokið. Ég ákvað þetta fyrir nokkru síðan og ég vil þakka forseta félagsins og framkvæmdarstjóranum fyrir að reyna að sannfæra mig um að vera áfram," sagði hann að lokum.
Roberto Di Matteo, Rafael Benitez, Marcelo Bielsa og Giuseppe Sannino eru meðal þjálfara sem Napoli hyggst ætla sér að hefja viðræður við.



