Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal á Englandi, var að vonum ánægður með að tryggja Meistaradeildarsæti í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag, en liðið vann Newcastle með einu marki gegn engu.
Lauren Koscielny sá um að skjóta Arsenal í Meistaradeildina á næstu leiktíð með laglegu marki, en það skildi liðin að í dag.
,,Þeir eru sérstakir. Ég hef sagt þeim það oft og mörgum sinnum, en þeir hafa sýnt það á síðustu tveimur mánuðum að þeir eru eitthvað annað," sagði Wenger.
,,Við höfum sýnt mikinn karakter og frábært viðmót. Við fengum 73 stig, sem eru þremur stigum betra en í fyrra."
,,Ég hef þjálfað marga hópa og einbeitingin, viljinn hjá þessum var ótrúlegur. Þetta er einn besti hópur sem ég hef þjálfað á ferli mínum," sagði hann að lokum.


