Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. maí 2017 23:04
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Dramatík í Þorlákshöfn
Ægismenn gerðu 2-2 jafntefli í kvöld
Ægismenn gerðu 2-2 jafntefli í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ægir 2 - 2 Reynir S.
0-1 Youssef Naciri (´28)
1-1 Jonathan Hood (´29)
2-1 Jonathan Hood (´69)
2-2 Daníel Örn Baldvinsson (´90)

Ægir og Reynir Sandgerði gerðu 2-2 jafntefli í 2. umferð 3-deildar karla í knattspyrnu í dag en leikið var á Þorlákshafnarvelli.

Youssef Naciri kom Reynismönnum á bragðið á 28. mínútu en Jonathan Hood jafnaði metin mínútu síðar.

Hood bætti við öðru marki fyrir Ægi á 69. mínútu en Daníel Örn Baldvinsson bjargaði stigi fyrir gestina þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Lokatölur því 2-2 en bæði lið eru með eitt stig eftir tvær umferðir og sitja í 6. og 7. sæti deildarinnar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner