Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. maí 2018 21:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bandaríkin: Gunnhildur lagði upp sigurmark
Sjáðu markið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lagði upp sigurmark Utah Royals í bandarísku deildinni i kvöld.

Utah fékk Houston Dash í heimsókn Rio Tinto Stadium í Utah.

Það var ekkert skorað í fyrri hálfleiknum en eftir rúmar fimm mínútur í seinni hálfleiknum komst Gunnhildur á sprett og sendi boltann fyrir Erika Tymrak sem kláraði vel.

Það voru ekki fleiri mörk skoruð eftir þetta og góður 1-0 sigur Utah Royals staðreynd þetta laugardagskvöld.

Utah er í fimmta sæti af níu liðum eftir átta leiki. Liðið, sem er á sínu fyrsta tímabili í deildinni, hefur safnað 11 stigum.

Hér að neðan má sjá myndband af marki Utah í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner