Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. maí 2018 16:20
Ingólfur Stefánsson
Inkasso-kvenna: Haukar ekki í vandræðum með Sindra
Hildigunnur Ólafsdóttir
Hildigunnur Ólafsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Sindri 1-4 Haukar
0-1 Berglind Baldursdóttir (31')
1-1 Nicole Maher, víti (41')
1-2 Sæunn Björnsdóttir (58')
1-3 Hildigunnur Ólafsdóttir (59')
1-4 Regielly Rodrigues (77')

Einum leik er lokið í Inkasso deild kvenna í dag. Haukar heimsóttu Sindra á Höfn.

Berglind Baldursdóttir kom Haukastúlkum yfir eftir rúman hálftíma leik en Nicole Maher jafnaði fyrir Sindra skömmu fyrir hálfleik og staðan 1-1 í leikhléi.

Haukar kláruðu leikinn á tveggja mínútna kafla í síðari hálfleik en mörk frá Sæunni Björnsdóttur og Hildigunni Ólafsdóttur á 58. og 59. mínútu gerðu út um leikinn.

Regielly Oliveira Rodrigues bætti við einu marki og gulltryggði 4-1 sigur Hauka sem vinna sín fyrstu stig í sumar. Sindri er með 1 stig eftir fyrstu tvo leikina.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner