Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 19. maí 2018 16:30
Ingólfur Stefánsson
Sara Björk bikarmeistari með Wolfsburg
Mynd: Wolfsburg
Sara Björk Gunnarsdóttir varð í dag þýskur bikarmeistari með Wolfsburg í annað skipti.

Wolfsburg sigraði Bayern Munchen 3-2 í vítaspyrnukeppni en staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var markalaus.

Sara Björk lék allan leikinn fyrir Wolfsburg en tók ekki víti í vítaspyrnukeppninni.

Sara varð á dögunum Þýskalandsmeistari með Wolfsburg en liðið getur fullkomnað þrennuna þegar það mætir Lyon í úrslitaleik Meistaradeildarinnar næsta fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner