Chelsea sigraði Manchester United þegar liðin mættust í úrslitaleik enska bikarsins í dag.
Chelsea byrjaði betur og komst yfir þegar Eden Hazard skoraði úr vítaspyrnu sem Phil Jones gaf.
Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur eftir markið, en inn í seinni hálfleikinn mætti United af krafti. Man Utd var mikið sterkari aðilinn í seinni hálfleiknum en náði ekki að kreista inn marki.

Alan Shearer, sérfræðingur BBC, furðar sig á því hvers vegna United byrjaði ekki leikinn eins og þeir spiluðu í seinni hálfleiknum.
„Chelsea hélt út, þeir gerðu það sem þeir þurftu að gera. Þeir voru mikið sterkari aðilinn fram á við í fyrri hálfleiknum," skrifar Shearer í textalýsingu BBC frá leiknum.
„Spurningin er samt, af hverju byrjaði United ekki leikinn eins og þeir gerðu í seinni hálfleiknum?"
Þegar stórt er spurt.
Athugasemdir