Guðmundur Þórarinsson skoraði á mikilvægum tímapunkti þegar Norrköping lagði Dalkurd í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Dalkurd náði forystunni í leiknum, sem var á heimavelli Norrköping, á áttundu mínútu og var staðan 1-0 fram á 34. mínútu en þá jafnaði Norrköping. Staðan jöfn í hálfleik.
Dalkurd náði forystunni í leiknum, sem var á heimavelli Norrköping, á áttundu mínútu og var staðan 1-0 fram á 34. mínútu en þá jafnaði Norrköping. Staðan jöfn í hálfleik.
Í upphafi seinni hálfleiks komst Norrköping yfir en fljótlega hafði Dalkurd jafnað aftur. Þá var röðin komin að Guðmundi, hann skoraði glæsilegt mark og kom Norrköping í 3-2.
Simon Skrabb gekk frá leiknum fyrir Norrköping tíu mínútum eftir mark Guðmundar, lokatölur 4-2. Hinn bráðefnilegi Arnór Sigurðsson lagði upp markið fyrir Skrabb.
Myndband af markinu má sjá með því að smella á tístið hér að neðan.
VIDEO: Gudmundur Thorarinsson gjorde ett drömmål när @ifknorrkoping besegrade @DalkurdFF med 4-2. #allsvenskan #NKPGDFFhttps://t.co/d3lz0rJmhl
— Allsvenskan (@AllsvenskanSE) May 19, 2018
Guðmundur, Arnór og Jón Guðni byrjuðu allir fyrir Norrköping, en Jón Guðni var tekinn af velli í hálfleik og Arnór á 91. mínútu. Alfons Sampsted var ekki í hóp hjá Norrköping.
Norrköping er í þriðja sæti deildarinnar eftir þennan sigur.
Óttar Magnús Karlsson sat þá allan tímann á varamannabekknm þegar Trelleborg gerði jafntefli við Sirius.
Trelleborg er með átta stig eftir níu leiki og er í 13. sæti af 16 liðum. Trelleborg er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni.
Anna Björk í sigurliði gegn meisturunum
Í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð gerðust stórir hlutir.
Íslendingalið Limhamn Bunkeflo 07, eða LB 07 vann sænsku meistarana í Linköping á heimavelli. Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan leikinn með LB 07 en Rakel Hönnudóttir var ekki í hóp.
Þá sigraði Djurgarden, með Guðbjörgu Gunnarsdóttur og Ingibjörgu Sigurðardóttur í sínu liði, Kalmar. Lokatölur 3-2 fyrir Djurgarden, sem er í áttunda sæti með sex stig úr fimm leikjum.
LB 07 er í fjórða sæti með sjö stig.
Athugasemdir