Tveir leikir fara fram í Álfukeppninni í dag, en gestgjafarnir mæta Mexíkó í hörkuleik.
Brasilía vann fyrsta leik sinn á mótinu gegn Japan, 3-0 og ætlar liðið sér að fylgja því eftir á meðan Mexíkó tapaði fyrir Ítalíu, 1-2.
Ítalía og Japan mætast í seinni leiknum, en Japan þarf nauðsynlega á sigri að halda, ætli liðið sér einhverja hluti í keppninni.
Leikir dagsins:
19:00 Brasilía - Mexíkó (Beint á RÚV Íþróttir)
22:00 Ítalía - Japan (Beint á RÚV Íþróttir)



