Fyrst hann kemst ekki norður að spila við Magna þá vill hann Pepsideildarlið næst
Almarr skoraði mark Frammara í venjulegum leiktíma í sigrinum á Ólafsvík í kvöld en þurfti svo að fara útaf vegna meiðsla. Hann var sammála því að róður gestanna þyngdist í kjölfarið.
Ég vill nú ekki tengja það því að ég fór útaf. Þeir skoruðu og þá kom smá stress í mannskapinn en svo kláruðum við þetta.
Ég vill nú ekki tengja það því að ég fór útaf. Þeir skoruðu og þá kom smá stress í mannskapinn en svo kláruðum við þetta.
Þegar hann var spurður hvort að keppnin fengi nú aukna þýðingu þegar liðið væri komið í 8 liða úrslit svaraði Almarr.
Mér finnst þetta mikilvæg keppni frá byrjun, ég hef farið í einn úrslitaleik og mig langar í annan og nú vonandi klára hann.
Almarr er mikill Akureyringur og aðspurður um næsta mótherja svaraði hann.
Ég var að frétta núna að Magni hefði dottið út en mig langaði norður að spila við þá. Ekkert út af því að þeir eru í lægri deild heldur bara að komast til Akureyrar. Fyrst þeir eru dottnir út þá vill ég bara fá annað Pepsideildarlið. KR, FH eða Stjörnuna.
Í viðtalinu ræðir Almarr líka hnjaskið á Frömmurum í kvöld og þá staðreynd að hann hefur nú skorað í báðum leikjum sínum á Ólafsvíkurvelli í sumar.





















