Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 19. júní 2013 20:52
Ívan Guðjón Baldursson
Álfukeppnin: Neymar sá um Mexíkó
Brasilía 2 - 0 Mexíkó
1-0 Neymar ('9)
2-0 Jo ('90)

Brasilía lagði Mexíkó í annari umferð Álfukeppninnar með mörkum frá Neymar og Jo, en Neymar lagði upp fyrir Jo.

Mexíkó er þar með dottið úr leik, en byrjunarlið Mexíkó innihélt þrjá gullverðlaunahafa frá Ólympíuleikunum í Lundúnum 2012.

Neymar skoraði glæsilegt mark þar sem hann tók boltann á lofti og Jo gulltryggði sigurinn með marki á lokamínútum leiksins eftir magnað einleik Neymar.

Brasilía er nú með sex stig eftir tvo leiki og markatöluna 5-0.
Slapp
banner