,,Það eru mörg lið sem brotna eftir tíu mínútna rothögg en við komum til baka," sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls við Fótbolta.net eftir 2-1 tap gegn Víkingi R. í Borgunarbikarnum í dag.
Víkingar náðu 2-0 forystu snemma leiks en Tindastólsmenn náðu að minnka muninn áður en fyrri hálfleikur var úti. Lengra komst liðið hins vegar ekki.
Tindastóll hefur einnig tapað síðustu þremur leikjum í fyrstu deildinni en Halldór Jón segir að liðið eigi meira inni.
,,Það er þannig í lífinu, fótbolta og öllu að ef það gengur illa verða menn að þjappa sér saman, berja í brjóstið á hvor öðrum, gera enn betur og vinna úr vandamálunum, þau eru til að leysa þau."
,,Við erum alls ekki af baki dottnir, við eigum að við eigum nóg inni. Við höfum verið að spila við feykilega sterk lið og að mörgu leyti staðið okkur ágætlega."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.





















