Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 12:44
Elvar Geir Magnússon
Formaður Keflavíkur: Líður ekki vel með þessa ákvörðun
Zoran Daníel Ljubicic. Keflvíkingar eru tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Zoran Daníel Ljubicic. Keflvíkingar eru tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
„Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun. Zoran er mikill vinur okkar og hefur unnið lengi fyrir félagið. Mér líður ekki vel með þessa ákvörðun," segir Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, en Zoran Ljubicic var látinn fara frá félaginu og við þjálfarastarfinu tekur Kristján Guðmundsson.

„Okkur fannst við þurfa að gera eitthvað. Þessi ákvörðun snýst eingöngu um stigafjölda, sigurleikirnir hafa verið fáir og við töldum að breytinga væri þörf."

„Það hafa allir verið að gera sitt besta. Liðið hefur lagt sig fram en ekki hefur gengið að landa stigunum. Við þekkjum Kristján mjög vel og hann stóð sig feykivel þegar hann var með liðið," segir Þorsteinn en hann segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin á stjórnarfundi í gær.

Að sögn hans stendur ekki annað til en að Gunnar Oddsson haldi starfi sínu sem aðstoðarþjálfari áfram og verði hægri hönd Kristjáns.
Slapp