Þýska stórliðið Bayer Leverkusen er við það að festa kaup á ítalska varnarmanninum Giulio Donati, sem leikur með Internazionale á Ítalíu.
Donati, sem er 23 ára gamall, var einn af lykilmönnum ítalska U21 árs landsliðsins á Evrópumótinu sem fór fram í Ísrael á dögunum.
Varnarmaðurinn var á láni frá Inter hjá Grosseto í Seríu B á síðustu leiktíð þar sem hann þótti standa sig vel.
Leverkusen tók eftir frammistöðu hans á Evrópumótinu og hefur samkvæmt ítölskum fjölmiðlum komist að samkomulagi við Inter um kaupverð á Donati, en Rudi Völler, sem er yfirmaður íþróttamála hjá Leverkusen flaug til Ítalíu í gær til þess að klára pappírsvinnuna.





