„Þetta er eitt besta veður sumarsins og að ná 3-0 sigri, maður hefði varla getað hugsað sér það betra," sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, eftir sigurinn gegn Leikni í kvöld.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 3 KR
„Leiknir er stórhættulegt lið og ekki þarf mikið að gerast svo lið skori. Við hefðum getað lent í vandræðum hefði Leiknir skorað á undan,"
Hannes er uppalinn hjá Leikni.
„Mig hefur lengi langað að spila hérna, fyrir mig var það sérstakt að koma hingað og spila," sagði Hannes en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
























