Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   mið 19. júní 2013 23:32
Brynjar Ingi Erluson
Hreggviður Heiðberg: Evrópuævintýrið úti
Hreggviður Heiðberg Gunnarsson
Hreggviður Heiðberg Gunnarsson
Mynd: Magni
Hreggviður Heiðberg Gunnarsson, fyrirliði Magna á Grenivík, segir að liðið geti verið stolt þrátt fyrir að vera úr keppni í Borgunarbikarnum.

Magni tapaði fyrir Gróttu í kvöld í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins, 3-2. Magni kom til baka í stöðunni 2-0 og jafnaði metin, en Grótta skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.

Magni sigraði þrjú lið fram að 16-liða úrslitunum, þar á meðal nágranna þeirra í KA, en Hreggó var þó svekktur að vera úr leik.

,,Miðað við baráttuna í leiknum þá er þetta hrikalega svekkjandi. Náum að jafna metin manni færri og tveimur mörkum undir. Fáum á okkur svo mark beint í andlitið, þetta hefur verið svolítið svona í sumar, en það er ekki hægt annað en að vera stoltur af þessari baráttu," sagði Hreggviður.

,,Mér fannst allir 50-50 boltar hafa dottið þeirra megin í fyrri hálfleik. Mér fannst svo í rauða spjaldinu að maðurinn stígur bara í veg fyrir hann og það er svosem ekkert við þessu að að segja. Við vorum sterkari eftir það en kannski gerði hann okkur greiða. Bara óheppni að hann gerði þetta ekki fyrr í leiknum," sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner