Andrés Iniesta, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, segir að liðið sé á réttri braut eftir 2-1 sigur á Úrúgvæ.
Spánn vann Úrúgvæ með tveimur mörkum gegn einu á dögunum í fyrsta leik liðsins í B-riðli Álfukeppninnar.
Spánn mætir Tahiti í næsta leik, en það ættu að vera örugg þrjú stig fyrir Spánverja í riðlinum.
,,Liðið skilaði frábærri frammistöðu og við virðumst vera á góðri leið með að komast upp úr riðlinum þegar tveir leikir eru eftir," sagði Iniesta.



