Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Isco hissa á yfirburðum spænska liðsins
Isco, leikmaður Malaga og spænska U21 árs landsliðsins, segist hissa yfir yfirburðum liðsins á Evrópumótinu sem fór fram í Ísrael.

Spánn slátraði mótinu, en liðið endaði á því að vinna úrslitaleikinn gegn Ítalíu með fjórum mörkum gegn tveimur og vann liðið þar með alla leiki sína á mótinu.

Isco var einn besti maður mótsins, en hann er á mála hjá Malaga í heimalandinu þar sem hann gerði vel í vetur. Hann segist aftur á móti hissa yfir yfirburðum liðsins á mótinu og að hann hafi alls ekki búist við þessu.

,,Það mikilvægasta var að vinna mótið. Það er undur og stórmerki hversu góðir við höfum verið á þessu móti en við erum aftur á móti mjög ánægðir," sagði Isco.
Slapp
banner